blettur til framfara fyrir gomlu og dýrið

12.06.2004

Villimennska

Var hjá ömmu og afa í hádeginu. Eftir kaffi og spjall bað afi mig um að aðstoða sig við að skipta um umbúðir á fingrinum á sér. Sagðist vera með smá skrámu. Kom í ljós að hann hafi næstum tekið stykki framan af fingrinum með hníf.... þannig hann klippti bara restina af!!!! Mér þótti sjálfsagt að hann færi til læknis þar sem þetta er alveg 4-5 spora gat og fingurinn er þegar orðin hvítur... en nei.. hann hofði á mig eins og ég væri kreisý! þetta er bara skeina!! Þar sem eg sat og dundaði mér við að búa um fingurinn fékk ég sögunna á bak við skeinuna. Hann var að skera niður mat fyrir fuglanna sem eru alltaf í garðinum hjá þeim.. og að sjálfsögðu lét hann stykkið úr fingrinum bara vera í matarskammtinum og gaf fuglunum það! villimannslegt? hhmm

2 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Afi er flottur! engin spurning... en hvað?... var blóðið blátt? (ég er svo fyndin!). Mikið sakna ég þeirra, ég övunda þig að geta eytt tíma með þeim. En ef ég væri heima væri ég sennilega að hugsa bara um Indland. Kona getur ekki fengið allt, ha! knúsaðu þau frá mér

8:06 PM

 
Anonymous Anonymous said...

hahha afi pafi... og hvad er malid med tennan hnif, sem hann notar bene i allt!!! mjog gott!! hlakka endalaust til ad sja ykkur!!! 9 dagar! gvunns

2:21 PM

 

Post a Comment

<< Home